Störfin í skólanum

Við tölum stundum um mikið álag á kennara sem snýr oft að samsetningu nemendahópa og stundum stærð þeirra. Það er ekki létt að vera með 20 nemendur í hóp þar sem kannski 20-40% þurfa sérúrræði vegna námslegra áskoranna eins og ADHD, DLD (málþroskaröskun), einverfa, ÍSAT nemendur... Það þarf að útbúa kennsluáætlanir sem hjálpa öllum og helst eiga þær að vera þannig að allir nemendur fá sömu verkefni, en með mismunandi þyngarstigi. Það er alveg til lausn á þessu því að allir þessir hópar hafa blómstrað í Ásgarðsskóla, en það er ekki það sem ég er að benda á hérna.
Kennurum er gert að manna matsalinn. Sumir taka það alltaf að sér, enda er greitt fyrir það. Stundum þarf að sinna frímínútnagæslu ef ekki er nægt annað starfsfólk til að tryggja öryggi nemenda. Það er svo margt annað en þetta sem kennarar eiga að gera eins og að sinna foreldrasamskiptum, skipulagi kennslu og fundartímum sem eru tilgreindir í kjarasamningi. Margir skólastjórar uppfylla þessa fundartíma með því að bóka kennara 1x til 2x í viku á sameiginlega fundi.
Skólar eiga líka að vera með 2 aðila á innleiðingarfundum vegna breytinga á aðalnámskrá, öryggisfulltrúa, öryggistrúnaðarmann, jafnréttisfulltrúa, læsisteymi, forvarnarteymi, áfallateymi, eineltisteymi, umhverfisteymi (eða -fulltrúa), gæðaráð, skólaráð, fræðsluráð og svo þarf að manna nemendafélagið. Einhverjir þurfa að vera trúnaðarmenn stétttarfélaga og svo þarf tengilið farsældar inn í skólann. Mælt er með því líka að kennarar vinni í teymum, sem krefst þess að þeir fundi saman 1x til 2x í viku (að lágmarki). Í skóla þar sem eru kannski 5 kennarar í fullri vinnu, er þetta bara brandari. En við erum með alls konar lög og reglugerðir sem krefjast þessa af skólunum óháð stærð þeirra og þessum verkefnum þarf að sinna hvort sem fólki líkar vel eða illa.
Ég er kannski að gleyma einhverju, en þetta er hellingur og eitthvað sem ætti að endurskoða ef markmiðið er að minnka álag á kennara. Undanfarnin misseri hafa þeir líka ofan á allt annað verið að útbúa námsefni, því að námsefnið frá MMS er fyrir neðan allar hellur. Það býður ekki upp á annað en yfirborðsnám og ef kennarar vilja láta nemendur kafa dýpra, þurfa þeir að finna leiðirnar sjálf. Ég held líka að vinsælasta kennslubókin í stærðfræði á unglingastigi núna sé Almenn stærðfræði sem er 30 ára gamalt námsefni (úff það eru víst 30 ár síðan1996 var!). Ég hef líka séð Átta-tíu bækurnar í notkun sem komu út fyrir um 20 árum síðan. Skali sem kom út fyrir 10 árum síðan, uppfyllir ekki það sem aðalnámskrá vill að skólar uppfylli og er því að mestu gagnslaus.
Þegar kennarar segjast vilja alveg kenna meira ef þeir losna við allt hitt, þá er ég hugsi. Hvað af þessu eru yfirvöld til í að létta af kennurum?
Gervigreindin túlkar vinnuálag á kennara þannig:





Comments