Þriðja aðgerðaráætlun menntastefnu, ábyrgð skóla og breytingar

Nýverið var gefin út tillaga til þingsályktunar vegna þriðju aðgerðaráætlunar menntastefnu til 2030. Það sem stendur upp úr eru metnaðarfull markmið sem eru illa fjármögnuð eða ekki komin skýr mynd á fjármögnunarþörf. MMS fær meira vald, fleiri starfsmenn, en það er ekkert fjármagn skilgreint inn í skólana. Því að áður en árangur af þessum markmiðin er metinn, þarf að skilgreina hver greiðir, hvaða vinnutími er ætlaður í þetta, hvaða stuðningur verður tiltækur og hvaða verkefni og faggreinar fá minna vægi á móti.
Það er ansi mikil hætti á því að ef niðurstöður verði ekki ásættanlegar, verði skólunum kennt um, þó að hluti vandans liggi í þeim forsendum sem þeim voru skapaðir. Það er eins og með nýtt námsmat. Skólunum verður alltaf kennt um ef að illa tekst til að innleiða stefnu yfirvalda um talnaeinkunnir, þó að um 100 athugasemdir hafi komið frá þeim og foreldum um hversu óskýr þessi innleiðing hefur verið.
Eitt af því sem ég fagna í raun er að það eigi að endurskoða viðmiðunarstundaskrá, en ég er alls ekki bjartsýn á að ég verði sátt við breytingarnar. Ég vil ekki fleiri íslenskutíma eða stærðfræðitíma þar sem nemendur vinna í eyðufyllingarbókum án þess að vinna dýpra með efnið. Ég heyri of oft úti í skólunum að það sé ekki hægt að fara dýpra því að nemendur muni ekki það sem hafi verið kennt áður.
Nú veit ég ekki hvað er kennt í kennaranáminu (annað en það sem ég lærði sjálf í meistaranáminu, sem var ekkert gagnlegt) en ég hef trú á leiðsagnarnámi ef allt er innleitt og ég hef trú á því sem er farið yfir í bókinni Make it stick. Áherslurnar þar eru:
Retrieval practice: virk upprifjun án þess að skoða svarið.
Spaced practice: dreifð endurtekning yfir tíma.
Interleaving: blöndun ólíkra verkefnategunda.
Elaboration: nemendur útskýra og tengja hugmyndir.
Low-stakes quizzes: stuttar kannanir án mikils vægis.
Reflection: nemendur ígrunda hvað þeir kunna og hafa lært.
Með því að nota þessar aðferðir eru meiri líkur á því að varanlegt nám eigi sér stað og kennarar upplifi ekki að nemendur muni ekki hvað þau hafi lært. En þetta krefst breytinga á kennsluháttum. Ef við skoðum námsefnið, þá er það hólfað niður. Við kennum rúmfræði í þessum kafla og algebru í næsta án þess endilega að tengja þetta saman. Við erum líka búin að kenna rúmfræðina eftir tímabilið og snertum ekki á því fyrr en kannski á næsta ári. Þetta er varasamt.
Við leggjum líka mikla áherslu á réttritun í íslensku en ekki eins mikið í öðrum faggreinum. Það er líka varasamt. Ef samfélagsfræðikennari myndi líka gera kröfu um réttritun þá myndi það falla undir „Interleaving“. En samfélagsfræðikennarar sem ég hef rætt við eru yfirleitt bara svo ánægðir með að nemendur skili af sér einhverju sem tengist efninu, að þeim finnst ekki rétt að vera að draga þau niður fyrir svona lagað. Það sem nemendur læra aftur á móti er að réttritun skiptir engu máli, nema í íslenskuverkefnum og jafnvel kannski bara á ákveðnu tímabili. Ef nemandi er að vinna með bókmenntir er kannski ekkert námsviðmið sem snertir á réttrituninni. Ef við viljum að nemendur læri eitthvað, þá þurfum við að hugsa það heildstætt.
Ég er stundum eins og biluð plata í ráðgjöfinni. Í nokkur ár hef ég verið að ræða mikilvægi þess að nemendur útskýri hugsunarferlið sitt, en komi ekki bara með niðurstöður. Ég vil að þetta sé gert munnlega, því að þannig er tryggt að kennari geti, í rauntíma, lagað hugtakaskilning, átt samræður yfir bekkinn og útskýrt fyrir öllum í einu. Hann getur þannig líka ýtt undir að nemendur noti tungumál faggreinarinnar og nemendur læra af hvort öðru. Ég var að tala við skólastjóra nýlega í einum af skólunum „mínum“ sem var að segja mér að í innliti í kennslustundir hafi hún heyrt nemendur vera að útskýra hvernig þeir fengu niðurstöðu í einhverjum dæmum og að aðrir nemendur hafi sagst hafa fengið sömu niðurstöðu en farið aðra leið. Ég fékk næstum tár í augun af gleði. Ég hef trú á þessi aðferðir skili árangri, en hún er hér fyrir ofan kölluð Elaboration.
Ef nemendur muna ekkert verður námið alltaf grunnnám og við komumst ekkert dýpra. Fyrir þá nemendur sem kunna það sem við viljum að kunna, erum við að búa til skólaleiða með því að vera stöðugt með verkefni sem veita enga áskorun af því að við erum alltaf í upprifjunarferli.
Ef við skoðum menntastefnuna og þessar staðreyndir, þá er þar talað um snemmtæka íhlutun, faglega kennara og skólaþjónustu. Í Rvk er skólaþjónusta og ég hef starfað þar. Ég var kennsluráðgjafi eins og ég núna. Aðrir kennsluráðgjafar hjá borginni voru sérkennsluráðgjafar og það er óskýrt í þessum drögum, hvaða eða hvernig ráðgjöf kennarar munu fá. Ef það á að takast að uppfylla þetta allt, þá þarf markvissa ráðgjöf til kennara sem er miðuð að þeim nemendahópi sem þeir eru með. Það er ekki gert á almennum fjarfundum, heldur einstaklingslega. Ef MMS ætlar að veita þannig þjónustu, þá þarf líklega að flytja inn fólk eða taka helling af hæfum kennurum úr kennslunni. Við erum nú þegar í þeirri stöðu í flestum sveitarfélögum að þurfa að ráða alla menntaða kennara sem sækja um störfin, hvort sem við teljum þau passa inn í skólamenninguna eða finnist þau vera hæf. Það er ekki um auðugan garð að gresja. Samt eru við með sívaxandi hóp starfsfólks sem eru leiðbeinendur (þ.e. ekki með kennsluréttindi).
Við hjá Ásgarði höfum reynslu af þessu og vitum hvaða þjónustu skólarnir þurfa, hvernig eigi að veita hana og hvað þurfi að laga. Í þeim fjölmörgu skólum sem við þjónstum er ekki ein ríkisleið hæf í ráðgjöfinni. Þarfirnar eru mjög misjafnar eftir samfélögum, eftir samsetningu kennara- og nemendahópa og eftir skólastjórnendum. Stundum getum við farið inn með hellings efni í einu, í öðrum skólum þarf að mata með teskeið og sumir verða ósáttir á einhverjum tímapunkti með ráðgjöfina, en það er eðlilegur partur af breytingastjórnun. Fólk vill ekki alltaf breyta og sérstaklega ekki ef það sér ekki tilgang eða hag af því.
Þannig að.... ég er ánægð með markmiðin sem koma fram í menntastefnunni, en ég er ekki ánægð með framkvæmdaráætlunina. Ég held að þetta verði eins og margt annað (t.d. Hvítbók Illuga) eitthvað sem fer ofan í skúffu og verður aldrei metið, en skólunum jafnvel kennt um ef árangur lætur á sér standa. Það er þó ljóst að kennarar þurfa bara að hlaupa hraðar með bakpoka sem sífellt verður þyngri og þyngri.
Gervigreindin bjó til mynd til að útskýra þetta þar sem brúin tengir skóla við menntastefnuna, en undir henni eru ókláraðar stoðir sem tákna fjármagnið, tímann og stuðninginn sem þarf til að markmiðin nái fram að ganga.





Comments